Sjálfbærni

Stjórnarhættir

Sjóvá hefur einsett sér að vera fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum sem felur í sér að stjórnarhættir skulu vera í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti og þær kröfur sem gerðar eru til félaga sem eru eftirlitsskyldir aðilar og skráð í kauphöll.

Sjóvá fylgir í hvívetna þeim lögum, reglum og tilmælum sem um starfsemina gilda. Félagið leitast við að tryggja gagnsæi um reksturinn með reglubundinni upplýsingagjöf og samskiptum við hagaðila í samræmi við stöðu félagsins.

Sjóvá uppfyllir lágmarksverndarráðstafanir í samræmi við ákvæði flokkunarreglugerðar Evrópusambandsins. Samhæfð áhættustýring nær til allra rekstrarþátta félagsins. Settar hafa verið áhættustefnur og að auki stefnur um upplýsingaöryggi og persónuvernd sem eiga að tryggja vernd upplýsinga, réttleika gagna, aðgengi og öryggi þeirra. Sjóvá leggur mikla áherslu á upplýsingaöryggi og fyrirbyggjandi aðgerðir í þeim efnum.

Sjóvá vill standa fyrir og stuðla að góðum og faglegum viðskiptaháttum. Félagið hefur skýra stefnu um að vinna gegn hvers konar spillingu, glæpsamlegri starfsemi og peningaþvætti í öllum viðskiptum félagsins.

Tengd heimsmarkmið

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem tengjast stjórnarháttum: