Ársskýrsla 2025
Rekstrarniðurstaða ársins 2025 endurspeglar afar sterkan grunnrekstur félagsins og styrkleika þess í breyttu landslagi á vátryggingamarkaði. Rekstur vátryggingastarfseminnar einkenndist af undirliggjandi hagfelldri tjónaþróun, sér í lagi í ljósi stórtjónaþróunar, sem skilar stórbættri afkomu vátryggingasamninga milli ára.
Niðurstaðan er í takt við uppfærðar horfur um afkomu af vátryggingasamningum sem kynntar voru samhliða uppgjöri fyrstu níu mánaða ársins og endurspegla betri afkomu en vænst var í upphafi árs. Tekjuvöxtur nam 3,5% sem er í takt við væntingar en minni en síðustu ár, en hafa verður í huga að markaðshlutdeild hefur aukist mikið undanfarin ár með heilbrigðum vexti.
Afkoma af fjárfestingastarfsemi var borin uppi af góðri afkomu af skuldabréfum en tap var bæði af skráðum og óskráðum hlutabréfum og afkoma af fjárfestingastarfseminni undir væntingum til lengri tíma litið.

Hagnaður ársins nam 2.066 m.kr. og arðsemi eiginfjár var 8,4%. Tekjur af vátryggingasamningum námu 34.778 m.kr. og jukust um 3,5% á milli ára. Kostnaður af vátryggingasamningum nam 32.046 m.kr. á árinu 2025 og jókst um 1,0% á milli ára. Afkoma af vátryggingarekstri fyrir skatta nam á árinu 2.576 m.kr. samanborið við 1.283 m.kr. árið áður. Samsett hlutfall var 92,6% á árinu 2025 en var 96,2% árið áður. Tekjuvöxtur var í takt við áætlanir en verulega dró úr vexti á fyrirtækjamarkaði milli ára. Tjón ársins hækkuðu um 0,5% milli ára, námu 25.219 m.kr. á árinu 2025 samanborið við 25.105 m.kr. á árinu 2024. Tjónahlutfall ársins var 72,5% samanborið við 74,7% árið á undan. Eitt stórt tjón féll til á árinu í samanburði við sex brunatjón á fyrra ári og útskýrir það stóran hluta viðsnúnings í afkomu vátryggingasamninga milli ára.
Rekstrarkostnaður af vátryggingasamningum jókst um 3,2% á milli ára og kostnaðarhlutfall þróaðist í takt við áætlanir og áherslur félagsins á aðhald í kostnaði án þess að það bitni á mikilvægri framþróun. Aukning í rekstrarkostnaði er drifin áfram af launakostnaði og rekstri og þróun upplýsingatækniinnviða. Fjöldi stöðugilda eykst lítillega á milli ára. Kostnaður við rekstur og þróun upplýsingatækniinnviða hefur það markmið að auka skilvirkni í rekstrinum með öflugum tækniinnviðum sem hafa verið efldir töluvert á undanförnum árum og styðja við hraða afgreiðslu og hátt þjónustustig.
Afkoma af fjárfestingastarfsemi var ásættanleg í ljósi erfiðrar stöðu á eignamörkuðum langt framan af ári en verulega undir væntingum. Afkoma af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta nam 448 m.kr. og var ávöxtun fjárfestingaeigna í stýringu 3,7% á árinu. Afkoma af skuldabréfasafni var góð, og nam ávöxtun 8,4% þar sem ávöxtun ríkisskuldabréfa var 7,9% og annarra skuldabréfa 8,8%. Tap var á skráðum og óskráðum hlutabréfum.
Arðgreiðslustefna félagsins miðar við að greiða að lágmarki 50% af hagnaði hvers árs til hluthafa í formi arðs, að því gefnu að gjaldþol sé innan gjaldþolsviðmiða stjórnar. Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður sem nemur kr. 0,95 á hlut fyrir rekstrarárið 2025 eða um 1.100 m.kr. Gjaldþol eftir fyrirhugaða arðgreiðslu er 1,40. Sótt hefur verið um heimild hjá FME til endurkaupa eigin hlutafjár á árinu 2026. Fjárhagslegur styrkur félagsins er mikill, líkt og ársreikningur félagsins sýnir. Eiginfjárhlutfall eftir fyrirhugaða arðgreiðslu er 30,3%, fjárhagsstaða félagsins er traust og er það eftir sem áður fært um að standa þétt við bakið á viðskiptavinum sínum og mæta ófyrirséðum áskorunum í rekstrinum.
Í árslok 2025 voru hluthafar 1.224 en þeir voru 1.105 í ársbyrjun og fjölgaði þeim því um 119 á árinu. Fyrsta nýtingartímabil kaupréttaráætlunar félagsins sem nær til allra fastráðinna starfsmanna var í nóvember s.l. og keyptu starfsmenn hlutabréf í félaginu fyrir 177 m.kr. Ánægjulegt er hve góð nýting starfsmanna var á veittum kaupréttum og að stór hluti þeirra hafi bæst í hóp hluthafa. Eignarhald Sjóvár er dreift og eru 48,8% hluta í eigu lífeyrissjóða, 37,0% í eigu einstaklinga og fyrirtækja, 8,4% í eigu innlendra verðbréfasjóða, 3,7% í eigu erlendra verðbréfasjóða og 2,1% í eigu fjármálafyrirtækja. Í lok árs voru 183 starfsmenn með kauprétti að um 15,5 milljónum hluta sem eru um 1,3% af hlutafé félagsins í dag.
Sjóvá hefur ávallt lagt mikla áherslu á forvarnir enda mikið í húfi að koma í veg fyrir og takmarka slys á fólki og tjón á eignum. Árið 2025 var engin undantekning og var unnið að fjölmörgum forvarnaverkefnum, oft í þéttu samstarfi við fjölbreytta samstarfsaðila. Sjóvá sinnir ekki síst forvarnahlutverkinu með því að miðla sérþekkingu starfsfólks og reynslu í samtali við viðskiptavini. Á árinu var enn aukið umfang áhættu- og þjónustuskoðana bæði á fyrirtækja- og einstaklingsmarkaði en í þeim felst ómetanlegt tækifæri til að styðja okkar viðskiptavini í eigin forvörnum, fræða um helstu tjón og áhættur, og benda á leiðir til að hindra og takmarka tjón. Í samskiptum okkar við fyrstu kaupendur fasteigna á sér einnig stað samtal um mikilvægi viðhalds og fræðsla um hvað felst í tryggingaverndinni.
Sjóvá hélt áfram mikilvægu samstarfi við Samgöngustofu um forvarnaverkefnið „Ekki taka skjáhættuna“ sem fór af stað á árinu 2024 og miðar að því að draga úr símnotkun í akstri. Eftirfylgnirannsókn gefur til kynna að átakið hafi þegar skilað aukinni meðvitund og jákvæðum árangri. Einnig var á árinu farið í átak við að koma mikilvægum forvarnaskilaboðum á framfæri við hættulegustu gatnamót og hringtorg höfuðborgarsvæðisins, þar sem mörg tjón hafa orðið skv. upplýsingum félagsins og því sérstakrar árvekni þörf. Við upphaf skólaárs í haust var einnig vakin athygli á ábyrgð allra vegfarenda á að tryggja öryggi barna í umferðinni. Öll skipta þessi forvarnamál samfélagið miklu máli og reynslan sýnir okkur að í forvörnum eru góðar vísur aldrei of oft kveðnar.
Sjóvá hefur um langt árabil átt í afar farsælu samstarfi við Slysavarnafélagið Landsbjörg og verið aðalstyrktaraðili samtakanna í 26 ár. Samstarf Sjóvár og Landsbjargar snýr að fjölbreyttum forvörnum, vátryggingavernd félagsmanna og tækjabúnaðar sveitanna og að löngu tímabærri endurnýjun björgunarskipaflotans. Nýju björgunarskipin hafa bætt verulega viðbragðstíma á hafinu í kringum Ísland og stuðla þegar að bættu öryggi sjófarenda. Við erum afar stolt af samstarfi okkar með þessu öfluga félagi og hlökkum til að halda því áfram.
Allt forvarnastarf sem unnið er á vegum Sjóvár hefur það markmið að minnka áhættu og tjón og stuðla þannig að betra og öruggara samfélagi.
Hjá Sjóvá er kappkostað að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf á grundvelli sérþekkingar starfsfólks og liggur þar einn helsti styrkleiki félagsins. Leitast er við að greina, skilja og mæta þörfum viðskiptavina og lögð áhersla á að vera í virku samtali við þá. Fylgst er grannt með þróun mála í samfélaginu og hagkerfinu til að vera tilbúin að bregðast hratt við breytingum sem geta haft áhrif á starfsemina. Það er okkur kappsmál að stuðla áfram að ánægju viðskiptavina okkar og tryggð.
Sjóvá hefur þá stefnu að vera þjónustufyrirtæki í fremstu röð og því var einkar ánægjulegt að uppskera efsta sæti tryggingafélaga í Íslensku ánægjuvoginni á árinu 2025, níunda árið í röð. Sjóvá fékk að þessu sinni hæstu einkunn sem tryggingafélag hefur fengið frá því mælingar ánægjuvogarinnar hófust, eða 72,9 stig. Félagið fékk jafnframt Gullmerki ánægjuvogarinnar þar sem mikill og marktækur munur var á Sjóvá og á næstu fyrirtækjum. Engu fyrirtæki á tryggingamarkaði hefur áður tekist að halda fyrsta sætinu í ánægjuvoginni óslitið níu ár í röð. Við vitum að sá góði árangur sem Sjóvá hefur náð byggir á sterkum mannauði og einstakri menningu, markvissum aðgerðum og þjónustuáherslum, þar sem sífellt er unnið að því að bæta þjónustu við viðskiptavini og styðja við hraða og skilvirkni í samskiptum. Við erum stolt og þakklát fyrir að viðskiptavinir okkar séu þeir ánægðustu á tryggingamarkaði en umfram allt er viðurkenningin hvatning til okkar að halda áfram að gera enn betur, með hag þeirra að leiðarljósi.
Stofn vildar- og tryggðakerfi Sjóvá er með rótgrónari vildarkerfum landsins og á sér rúmlega 30 ára sögu. Viðskiptavinum í Stofni bjóðast ýmis afsláttarkjör og fríðindi, til viðbótar við endurgreiðslu hluta iðgjalda, fyrir tjónlausa og skilvísa viðskiptavini. Hjá Sjóvá er litið á það sem sanngirnismál að umbuna tjónleysi með þessum hætti og hafa greiðslur til Stofn félaga numið 12,3 milljörðum króna í sögu Stofns til loka ársins 2025. Fjölskyldur í Stofni hjá Sjóvá eru nú 42.800. Þá fengu rúmlega 32 þúsund tjónlausir viðskiptavinir okkar samtals 1.011 milljónir króna með Stofn endurgreiðslu á árinu 2025.
Félagið hefur áfram unnið að því að styrkja vöruframboð sitt, efla þjónustuleiðir, hvort sem þær eru í gegnum útibúanetið eða með stafrænum hætti. Þá hefur markvisst verið unnið að því undanfarin ár að nútímavæða allt tækniumhverfi félagsins með uppfærslu á lykilkerfum ásamt því að endurhanna og einfalda umhverfið. Erum við nú í aðstöðu til að nýta okkur nýjustu tæknilausnir sem í boði eru. Það leggur grunn að frekari framþróun á þjónustuleiðum og gerir okkur kleift að færa okkur enn nær viðskiptavinum okkar. Markmiðið er alltaf að veita framúrskarandi þjónustu. Sjóvá kynnti á árinu meðgöngutryggingu, nýja vernd á íslenskum tryggingamarkaði. Henni er ætlað að veita verðandi foreldrum samfellda vernd á mikilvægu tímabili í lífi þeirra og hefur tryggingunni verið vel tekið.
Sjóvá rekur nú 15 útibú og þjónustuskrifstofur um landið auk höfuðstöðva í Reykjavík. Sjóvá hefur einnig lagt áherslu á að fara í heimsóknir í smærri byggðakjarna og bjóða þjónustu pólskumælandi ráðgjafa fyrir þá sem þess óska. Sífelld þróun stafrænna lausna og þjónustuleiða, einföldun ferla og umbætur hjálpa okkur til að bæta hraða og skilvirkni í þjónustu og auka ánægju viðskiptavina.
Sjóvá fékk viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki VR í stærstu vinnumarkaðsgreiningu sem framkvæmd er á Íslandi. Sjóvá hefur mörg undanfarin ár verið á meðal 5 efstu fyrirtækja í flokki stórra fyrirtækja. Við teljum þessa frábæru niðurstöðu alls ekki vera sjálfsagða og erum þakklát fyrir að starfsfólk okkar sé jafn ánægt og stolt af því að starfa hjá Sjóvá eins og raun ber vitni. Við vitum sem er að öflugur mannauður er grunnurinn að góðri þjónustu og ánægju viðskiptavina.
Sjóvá hlaut á árinu viðurkenningu FKA og Jafnvægisvogarinnar sem veitt er þeim fyrirtækjum sem þykja skara fram úr í jafnréttismálum.
Sjóvá hlaut viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum sem veitt er af Stjórnvísi, Viðskiptaráði, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq á Íslandi, og byggir á úttekt á stjórnarháttum meðal annars á grundvelli leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja.
Sjóvá var efst tryggingarfélaga í Sjálfbærniásnum og var það í annað sinn sem sú viðurkenning var veitt. Sjálfbærniásinn er samræmdur mælikvarði sem mælir viðhorf íslenskra neytenda til frammistöðu fyrirtækja og stofnana í sjálfbærni.
Reitun framkvæmdi í sumar UFS sjálfbærnimat á Sjóvá sem fékk einkunnina B1 og 80 stig af 100 mögulegum. Það telst góð einkunn og er vel yfir meðaltali þeirra félaga sem Reitun hafði metið á Íslandi sem stóð í 73 þegar matið var framkvæmt. Matið gerir grein fyrir hvernig fyrirtæki standa frammi fyrir áhættum sem snúa að umhverfis- og félagsþáttum og stjórnarháttum.
Það er ánægjulegt að fá þessar viðurkenningar og mat sem ofan greinir sem endurspegla sterka fyrirtækjamenningu og mikinn metnað hvert sem horft er í rekstrinum.
Sjóvá hefur lagt höfuðáherslu á að vera öflugt arðgreiðslufélag sem byggir á öguðum grunnrekstri, þar sem vátryggingar eru í forgrunni. Félagið hefur vaxið og dafnað undanfarin ár og orðið stærsta vátryggingafélag landsins og hefur skilað jákvæðri afkomu á hverju ári frá skráningu félagsins á markað. Félagið hefur reynst arðbært fyrir eigendur með hagfelldri þróun hlutabréfaverðs frá skráningu á markað ásamt reglulegum arðgreiðslum til hluthafa. Við metum stöðu Sjóvár sterka í breyttu landslagi á vátryggingamarkaði þar sem sérþekking á tryggingum skapar verðmæt viðskiptasambönd sem byggja á stuttum boðleiðum og skýrum heimildum til ákvarðana. Nánd við viðskiptavini eykur skilning þeirra og okkar á réttri vátryggingaþörf.
Við bjóðum starfsmenn og aðra nýja hlutafa velkomna í hluthafahópinn.
Á árinu 2026 munum við hér eftir sem hingað til leggja áherslu á arðbæran og ábyrgan vátryggingarekstur með framúrskarandi þjónustu að leiðarljósi.
Okkur er efst í huga þakklæti til starfsmanna félagsins fyrir þeirra góðu störf á árinu 2025. Styrkleikar Sjóvár eru sterkur og samheldinn hópur stjórnenda og starfsmanna sem hefur skýr markmið og hefur sýnt eftirtektarverðan árangur. Við þökkum hluthöfum fyrir traust til félagsins og viðskiptavinum fyrir tryggð við félagið og samfylgdina á árinu 2025.
Hermann Björnssonforstjóri
Björgólfur JóhannssonStjórnarformaður