Ársskýrsla 2025

Efst í ánægjuvoginni 9. árið í röð

Í janúar 2026 var tilkynnt að Sjóvá væri efst tryggingafélaga í Íslensku ánægjuvoginni 2025. Sjóvá hlaut 72,9 stig, sem er hæsta einkunn sem tryggingafélag hefur fengið í Ánægjuvoginni og marktækt hærra en önnur félög. Sjóvá fær því gullmerki Ánægjuvogarinnar 2025 og er með ánægðustu viðskiptavinina á íslenskum tryggingamarkaði.

Stjórnvísi og Prósent standa að mælingu Íslensku ánægjuvogarinnar. Í henni eru mældir nokkrir þættir sem hafa áhrif á ánægju viðskiptavina, þ.e. væntingar, ímynd, mat á gæðum og virði þjónustu. Við hjá Sjóvá fylgjumst alltaf vel með niðurstöðum þessara mælinga, enda um að ræða mikilvægan mælikvarða á upplifun viðskiptavina. Við erum sannarlega þakklát fyrir að hljóta þessa viðurkenningu 9. árið í röð og glöð að sjá að viðskiptavinir okkar kunni að meta þjónustu okkar.

Eins og áður lítum við á viðurkenninguna sem staðfestingu á því að við séum á réttri leið og sem hvatningu til að halda áfram á sömu braut, með áherslu á að gera stöðugt betur í þjónustu okkar við viðskiptavini.

Hægt er að lesa betur um áherslur okkar í þjónustu í umfjöllun um ánægju viðskiptavina og annarra notenda þjónustu.