Ársskýrsla 2025

Fjár­festingar, ávöxtun og markaðs­aðstæður

Ávöxtun eignasafnsins árið 2025 var 3,7% en verðbólga yfir árið var 4,5% og raunávöxtun því neikvæð um 0,8%. Það er verulega undir væntingum okkar í upphafi árs en eignamarkaðir voru afleitir hérlendis bróðurpart ársins.

Ávöxtun eignasafnsins er þó ásættanleg í samanburði við helstu vísitölur. Úrvalsvísitala hlutabréfa, að teknu tilliti til arðgreiðslna, hækkaði um 0,4% á árinu, Ríkisskuldabréfavísitala Kviku um 7,7% og Skuldabréfavísitala Kviku um 8,2%.

Fjárfestingatekjur námu 2.449 m. kr. og skiluðu skuldabréf og handbært fé jákvæðri afkomu en skráð – og óskráð hlutabréf neikvæðri afkomu á árinu 2025.

Ávöxtun skráðra hlutabréfa var neikvæð um 5,5% á árinu og afkoma neikvæð um 967 m. kr. sem er undir væntingum. Skýrist slæm afkoma helst af almennt erfiðu árferði á hlutabréfamarkaði hérlendis en einnig átti Alvotech einstaklega erfitt uppdráttar á árinu. Afkoma Sjóvár af hlutabréfum Alvotech var neikvæð um 1.586 m. kr. á árinu og skýrir því vel rúmlega neikvæða afkomu skráðra hlutabréfa.

Afkoman af ríkisskuldabréfum var jákvæð um 1.391 m. kr. eða 7,9%. Vaxtanæmi skuldabréfasafnsins hefur haldist nokkuð lágt síðustu ár og var nokkur breyting þar á á árinu 2025. Meðallíftími skuldabréfasafnsins var 3,5 ár í lok árs samanborið við 2,3 í upphafi árs. Verðtryggingarhlutfall safnsins tók ekki miklum breytingum á árinu en hækkaði lítillega og nam 51,1% í lok árs. Önnur skuldabréf skiluðu 1.961 m. kr. eða 8,8% en sömu stefnu um líftíma og verðtryggingarhlutfall var fylgt þar.

Afkoman af óskráðum hlutabréfum var neikvæð um 194 m.kr. eða -7,1%. Stærstu breytingar í óskráðum hlutabréfum voru á virði eignarhlutar í Controlant og Carbon Recycling International sem voru samtals færð niður um 238 m.kr. Aðrar breytingar voru smávægilegar.

Árið 2025 var nokkuð viðburðarríkt með tilliti til verðbréfamarkaða og efnahagsmála hérlendis. Sala á eftirstandandi hlut ríkissjóðs í Íslandsbanka kláraðist, Arion banki óskaði eftir samrunaviðræðum við Íslandsbanka sem neituðu því og skömmu síðar hófust samrunaviðræður á milli Arion banka og Kviku banka, Íslandsbanki og Skagi hófu samrunaviðræður sem síðar var slitið og PLAY varð gjaldþrota. Engar nýskráningar voru á hlutabréfamarkaði hérlendis á árinu 2025. Verðbólga hefur reynst þrálátari en margir áttu von á og endaði árið í 4,5%. Seðlabankinn lækkaði þó stýrivexti um samtals 1,25% á árinu en hélt raunvaxtaaðhaldinu áfram nokkuð þéttu. Ljóst er að þensla í hagkerfinu hefur minnkað töluvert frá því sem var en atvinnuleysi hefur þokast upp og spár gera ráð fyrir að hagvöxtur hafi verið 1,3% á árinu 2025 sem er nokkuð undir hagvaxtargetu þjóðarbúsins.