Ársskýrsla 2025
Forvarnir hafa frá upphafi verið mikilvægur hluti af starfsemi Sjóvár. Undanfarin ár hefur mikil áhersla verið lögð á forvarnir gegn umferðarslysum, enda um afar brýnt verkefni að ræða. Í nútímasamfélagi getur hins vegar verið erfitt að ná athygli fólks og tryggja að skilaboð sem skipta máli nái til þeirra. Fyrir vikið höfum við prófað okkur áfram með ýmsar ólíkar miðlunarleiðir og framsetningu skilaboða, með það að markmiði að auka öryggi fyrir öll í umferðinni.

Í mars 2025 fórum við af stað með herferð þar sem umhverfisskilti, auglýsingaskjáir og strætóskýli voru nýtt til að koma forvarna- og öryggisskilaboðum til skila til vegfarenda á stöðum þar sem ástæða er til að vera sérstaklega á varðbergi. Efnið var unnið út frá tjónagögnum okkar hjá Sjóvá og slysatölum Samgöngustofu sem sýna til dæmis hvar varasömustu gatnamótin er að finna á höfuðborgarsvæðinu og á hvaða hringtorgum flestir árekstrar verða. Þetta vakti fólk til umhugsunar um hætturnar á þessum svæðum.
Í byrjun hausts var svo farið af stað með aðra herferð á umhverfisskiltum þar sem vakin var athygli á að þúsundir barna væru að bætast við umferðina í upphafi skólaársins og væru þau mörg að fara um göturnar sjálf í fyrsta sinn. Með þessum hætti vildum við stuðla að því að fólk færi sérstaklega varlega á þessum tíma, tæki tillit til óvarðra vegfarenda og gerði sér betur grein fyrir aðstæðum.
Ánægjulegt var að sjá hversu mikla athygli báðar þessar herferðir vöktu í samfélaginu en verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá fór í fjölmörg viðtöl í útvarpi og vefmiðlum í tengslum við þær. Þannig var skilaboðunum fylgt vel eftir og undirstrikað að það væri sameiginleg ábyrgð okkar allra að tryggja umferðaröryggi vegfarenda. Hér áttu skilaboð herferðarinnar Ekki taka skjáhættuna einnig áfram við, enda vitað að farsímanotkun undir stýri er því miður enn gríðarlega stórt vandamál. Nýjustu kannanir Samgöngustofu sýna að nauðsynlegt er að brýna þau skilaboð stöðugt fyrir ökumönnum og halda öflugri umræðu um umferðaröryggi á lofti.
Hér má sjá dæmi um umfjallanir í fjölmiðlum í tengslum við herferðirnar:
Skjáhætta við hættulegustu gatnamót Reykjavíkur
Varasamasta hringtorg landsins
Þúsundir barna bætast við umferðina
Hægt er að lesa nánar um áherslur okkar í forvörnum í umfjöllun um forvarnir.
