Sjálfbærni

Sjóvá vill vera eftirsóknarverður vinnustaður sem getur ráðið til sín hæft starfsfólk með metnað fyrir að veita framúrskarandi þjónustu. Sjóvá hlúir vel að fyrirtækjamenningu félagins sem einkennist af hárri starfsánægju, stolti, umhyggju og sérþekkingu á tryggingum. Sjóvá leggur einnig mikla áherslu á öfluga símenntun og starfsþróun starfsfólks sem undirstöðu góðs reksturs og ánægju viðskiptavina.
Sjóvá hefur um árabil unnið markvisst að jafnréttismálum og lagt áherslu á að vera í fararbroddi í málaflokknum. Stefna Sjóvár í jafnréttismálum byggir á mannréttindastefnu sem miðar að því að tryggja jöfn laun og tækifæri starfsfólks og fjölbreytileika í samsetningu stjórnar, stjórnenda og starfsfólks. Sjóvá hefur í heiðri grundvallarmannréttindi eins og þeim er lýst í alþjóðasamningum.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem tengjast mannauði:
Þróun starfsánægju hjá Sjóvá samkvæmt mælingum Gallup
Hæsta einkunn fyrir félagsþætti í UFS mati
Sjóvá fékk hæstu einkunn gefna fyrir félagsþætti í UFS áhættumati Reitunar sem framkvæmt var í júní, einkunnina A1 eða 97 stig af 100 mögulegum fyrir flokkinn. Þar af fékk Sjóvá 100 stig af 100 mögulegum fyrir undirflokkinn Mannauð.

.jpg&w=2048&q=75)
Ánægja starfsfólks
Um langa hríð hefur verið lögð mikil áhersla á að byggja upp og hlúa að ánægju starfsfólks, enda er hún grunnforsenda þess að hægt sé að veita framúrskarandi þjónustu og stuðla að ánægju viðskiptavina. Vel er fylgst með þróun starfsánægju og öðrum mikilvægum mælikvörðum en Gallup framkvæmir árlega vinnustaðagreiningu hjá Sjóvá sem mælir meðal annars helgun, hollustu og tryggð starfsfólks.
Á árinu 2025 mældist starfsánægjan 4,61 af 5 mögulegum, samkvæmt mælingu Gallup. Það er með því hæsta sem mælist hjá íslenskum fyrirtækjum og er Sjóvá í topp 13% fyrirtækja þegar litið er til starfsánægju, miðað við gagnabanka Gallup.
„Við erum eins og ein fjölskylda, eins væmið og það er. Það er svo gott fólk að vinna hérna, alltaf gaman að mæta í vinnuna og eyða tíma með þessu frábæra fólki. Allir sammála því að við ætlum að ná árangri og það skilar sér á alla vegu.“
Fyrirtæki ársins
Sjóvá hlaut viðurkenninguna Fyrirtæki ársins 2025, í stærstu vinnumarkaðskönnun á Íslandi sem VR stéttarfélag lætur framkvæma á hverju ári. Um 200 íslensk fyrirtæki taka þátt í könnuninni sem mælir stöðu á níu mikilvægum þáttum í starfsumhverfi fyrirtækja. Þremur efstu fyrirtækjum í flokki lítilla, meðalstórra og stórra fyrirtækja er veitt viðurkenningin Fyrirtæki ársins. Sjóvá mældist efst allra fyrirtækja í þáttunum ánægja og stolt starfsmanna í flokki stórra fyrirtækja.
Í árslok voru starfrækt
Sjóvár um allt land.
Í árslok störfuðu
í 185 stöðugildum hjá Sjóvá.
Virkt samtal við starfsfólk
Lögð er rík áhersla á regluleg samtöl og hvetjandi endurgjöf til starfsfólks. Stjórnendur eiga svokölluð starfsmannasamtöl við hvern og einn starfsmann í sínu teymi, þar sem meðal annars er farið yfir stöðu helstu verkefna, markmið, símenntun, frammistöðu og samskipti. Að jafnaði fara þessi viðtöl fram fjórum sinnum á ári. Þá hefur verið lögð áhersla á virka þátttöku alls starfsfólks í stefnumótunarvinnu félagsins í gegnum tíðina, líkt og gert var með vinnufundum starfsfólks 2024 þegar sú stefna sem nú er unnið eftir var mótuð.
Jafnlaunavottun og staða jafnréttismála
Sjóvá hefur verið með jafnlaunavottun frá árinu 2014, sem staðfestir að hjá fyrirtækinu sé virkt jafnlaunakerfi. Stöðugar umbætur eru gerðar á kerfinu og er árangur þess mældur reglulega.
Jafnlaunavottun Sjóvár var endurnýjuð á árinu 2025 í kjölfar úttektar ytri aðila á jafnlaunakerfinu. Samkvæmt niðurstöðum úttektarinnar árið 2025 mældist óútskýrður launamunur kynjanna hjá Sjóvá 0,6%, konum í hag.
„Helsti styrkleiki Sjóvá er hvað þjónustustigið er hátt og hvernig það er mikill vilji innanhúss til þess að aðstoða hvert annað.“
Viðurkenning Jafnvægisvogarinnar
Sjóvá hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar, hreyfiaflsverkefnis FKA, í 7. sinn á árinu 2025. Jafnvægisvogin hefur þann tilgang að auka jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á Íslandi. Viðurkenningarnar hafa verið veittar frá 2019 og hefur Sjóvá verið í hópi viðurkenningarhafa öll árin, auk þess sem félagið hefur átt sæti í stýrihóp verkefnisins og verið stoltur bakhjarl þess frá upphafi.
Hér má sjá kynjaskiptingu starfsfólks og stjórnenda miðað við árslok 2025:
Karlar voru
starfsfólks
Konur voru
starfsfólks
Karlar voru
stjórnenda
Konur voru
stjórnenda
Þjálfun, fræðsla og endurmenntun
Það er stefna Sjóvár að tryggja að starfsfólk búi ávallt yfir þeirri þekkingu og færni sem þarf til að geta veitt framúrskarandi ráðgjöf og þjónustu og geta tekist á við dagleg störf. Þjálfun, fræðsla og endurmenntun gegna þar lykilhlutverki og því er mikill metnaður lagður í að sinna því starfi vel.
Sjóvá hefur mikinn metnað fyrir því að taka vel á móti nýju starfsfólki. Nýliðafræðsla félagsins er í stöðugri endurskoðun, bæði rafrænt fræðsluefni sem þjálfun á vinnustöð. Nýjar hugmyndir og efni koma oft frá starfsfólkinu sjálfu bæði nýju fólki og þjálfurum þeirra. Í lok sumars var framkvæmd nýliðakönnun sem sýndi mikla ánægju með fyrirkomulag nýliðafræðslu.
Mikilvægur þáttur í fræðslustarfinu eru reglulegir fræðslufundir fyrir allt fyrirtækið sem haldnir eru á miðvikudagsmorgnum. 26 slíkir fundir voru haldnir á árinu þar sem boðið var upp á fjölbreytt erindi, bæði frá sérfræðingum félagsins til að miðla þekkingu milli deilda og frá utanaðkomandi sérfræðingum, sem fjölluðu um allt frá netöryggi til bjargráða við streitu.
„Ég hef alltaf fengið persónulega og góða þjónustu hjá Sjóvá, sama við hvern er talað. 😊“
Á árinu var stofnuð fræðslunefnd sem hefur að markmiði að ná enn betur utan um fræðslumál félagsins og sitja fulltrúar frá öllum sviðum í henni. Rafræna fræðslukerfið Viska gegnir einnig mikilvægu hlutverki en þar má finna fjöldann allan af námskeiðum sem styðja við sí- og endurmenntun starfsfólks, sem og heilsu og forvarnir.
Á síðustu tveimur árum hafa yfir 60 starfsmenn sótt 15 stunda grunnnám í lögum um tryggingar við Háskólann í Reykjavík. Tryggingaskólinn er samstarfsverkefni HR, SFF og tryggingafélaganna. Árið 2025 var í fyrsta skiptið boðið upp á viðbótarnám á sviði ábyrgðartrygginga, persónutrygginga og ökutækjatrygginga við skólann.
Starfsfólk er að auki duglegt að koma auga á tækifæri til að sækja sér viðbótarþekkingu í gegnum nám, námskeið eða ráðstefnur, innanlands sem utan, bæði til að viðhalda þekkingu sinni og afla nýrrar. Sjóvá leggur sig fram um að styðja við slíkt frumkvæði og styrkja þannig þekkingu innan félagsins, sem er enda eitt af grunn gildum Sjóvár.
„Ég veit ekki hvað konan heitir sem aðstoðaði mig en hún fær stórt hrós frá mér. Það var augljóst að hún vildi hjálpa mér og ráleggja mér þó það tæki hana tíma. Frábær starfsmaður þarna.“
Hlúð að heilsu og velferð
Á árinu var líkt og undanfarin ár lögð áhersla á aðgerðir tengdar almennri velferð og heilsu starfsfólks, svo sem með sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum, lengra fæðingarorlofi og annarri vinnuhagræðingu. Árleg heilsufarsskoðun var í boði og starfsfólk fékk greidda líkamsræktarstyrki. Viðtöl við sálfræðinga og tímar hjá sjúkraþjálfara voru einnig niðurgreiddir en allt eru þetta aðgerðir sem ætlað er að draga úr lífsstíls- og heilsuáhættum og auka velferð starfsfólks.