Sjálfbærni

Sjóvá fylgir þeim lögum og reglum sem um starfsemina gilda. Sjóvá einsetur sér að vera fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum sem felur í sér að stjórnarhættir séu í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti og þær kröfur sem gerðar eru til félaga sem eru eftirlitsskyldir aðilar og skráð í kauphöll. Sjóvá hefur sett sér hlítingarstefnu, siðareglur og er allt starfsfólk bundið trúnaði um hvaðeina sem það verður áskynja í starfi sínu varðandi Sjóvá, viðskiptavini, tjónþola eða aðra hagsmunaaðila.
Sjóvá hefur sett sér stefnur um upplýsingaöryggi og persónuvernd sem eiga að tryggja vernd upplýsinga, réttleika gagna, aðgengi og öryggi þeirra. Sjóvá leggur mikla áherslu á upplýsingaöryggi og fyrirbyggjandi aðgerðir í þeim efnum.
Sjóvá uppfyllir lágmarksverndarráðstafanir í samræmi við ákvæði flokkunarreglugerðar Evrópusambandsins.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem tengjast stjórnarháttum:
Um starfsemi Sjóvár gilda ýmis lög og reglur, bæði vegna eðlis starfseminnar og þess að félagið er skráð á markað. Sjóvá er eftirlitsskyldur aðili og skráð í kauphöll. Ásamt framangreindu skapar það umgjörð fyrir starfsemi félagsins og hefur áhrif á hana. Félagið leggur ríka áherslu á að fylgja í hvívetna þeim lögum og reglum sem um starfsemina gilda.
Áhættur tengdar stjórnarháttum eru hluti af rekstraráhættu félagsins. Rekstraráhætta er samsett úr nokkrum þáttum, þ.e. stefnumótunaráhættu, áhættu sem skapast vegna upplýsingakerfa eða upplýsingaleka, lagalegrar áhættu og orðsporsáhættu. Sem dæmi eru þetta áhætta vegna ófullnægjandi eða gallaðra kerfa, háttsemi starfsfólks eða annarra innri eða ytri þátta sem geta leitt til fjárhagslegs taps eða verulegra rekstrartruflana. Rekstraráhætta nær til allra rekstrareininga samstæðunnar. Áhætta vegna stjórnarhátta snýr einnig að því að félagið uppfylli kröfur og væntingar um gagnsæi og upplýsingagjöf ekki með fullnægjandi hætti, hvort heldur sem er gagnvart viðskiptavinum, hluthöfum og öðrum hagaðilum.
Í Sjóvá er fyrir sterk og formföst menning er varðar stjórnkerfi. Mikill vilji er til að gera vel og gæta að gagnsæi í hvívetna, sem og eiga í góðu samstarfi við eftirlits- og úttektaraðila, bæði innri og ytri. Ábendingar úttektaraðila eru nýttar til að bæta reksturinn og sníða af vankanta í ferlum og verklagi þegar á þarf að halda. Fræðsla og ráðgjöf sem skilar sér í betri þekkingu og skilningi viðskiptavina á tryggingavernd er til þess fallin að byggja undir traust og tryggja að virði og væntingar fari saman og í því liggja áfram tækifæri fyrir Sjóvá. Stöðugt er unnið að því að efla upplýsingaöryggi og vernd persónuupplýsinga í takt auknar kröfur og áhættu sem tengist sviksemi af ýmsum toga.



Stjórnarhættir félagsins taka mið af leiðbeiningum Viðskiptaráðs Íslands, Nasdaq Iceland hf. og Samtaka atvinnulífsins og lögum um ársreikninga, lögum um hlutafélög, lögum um vátryggingastarfsemi og reglugerð um vátryggingastarfsemi.
Stjórnarháttayfirlýsing Sjóvár fyrir árið 2025 er hluti af ársreikningi og er aðgengileg hér.
Stjórnkerfi
Til að stýra áhættum sem snúa að stjórnkerfi og öðrum áhættum í rekstri hefur Sjóvá sett sér stefnur, markmið og mælikvarða. Með stefnum, reglum og aðgerðum uppfyllir félagið jafnframt kröfur um lágmarksverndarráðstafanir sem kveðið er á um í flokkunarreglugerð Evrópusambandsins.
Mannréttindastefna lýsir áherslum Sjóvár í mannréttinda- og jafnréttismálum og fjölbreytileika. Markmið stefnunnar er að tryggja jafna stöðu, tækifæri og fjölbreytileika á öllum sviðum félagsins og með henni uppfyllir félagið alþjóðlegar laga- og leiðbeiningakröfur um félagsleg viðmið, mannréttindi, aðgerðir og áreiðanleikakönnunarferla.
Félagið hefur sett sér stefnu um varnir gegn mútum og spillingu sem lýsir áherslum og aðgerðum í málaflokknum. Skattastefna félagsins tryggir að skattaáhættu sé stýrt, að farið sé að lögum og reglum og að stuðlað sé að gagnsæi í skattamálum. Félagið hefur sett sér reglur um vernd uppljóstrara og opnað gátt til að senda inn tilkynningar um mögulegt misferli.
Tilkynningagátt, meðhöndlun ábendinga og kvartana
Sjóvá er með tilkynningagátt fyrir tilkynningar um mögulegt misferli eða ámælisverða háttsemi þar sem starfsfólk og aðrir hagaðilar geta sent inn tilkynningar nafnlaust eða undir nafnleynd. Sjóvá hefur sett sér stefnu um meðhöndlun ábendinga og kvartana sem tryggir gagnsætt og skilvirkt verklag við úrvinnslu og skjóta og sanngjarna afgreiðslu.
Siðareglur fyrir starfsfólk og birgja
Siðareglur Sjóvár eru grunnviðmið starfsfólks fyrir góða viðskiptahætti og siðferði og eiga þær að stuðla að því að starfsemin einkennist af fagmennsku og heiðarleika. Að auki er Sjóvá með siðareglur fyrir birgja sem félagið fer fram á að birgjar uppfylli. Siðareglum birgja er ætlað að stuðla að því að kröfur um viðskiptahætti og siðferði séu uppfylltar hjá birgjum okkar, sem og í virðiskeðju þeirra.
Samkeppnisréttaráætlun
Félagið hefur sett sér samkeppnisréttaráætlun til að greina og draga úr samkeppnisréttarlegum áhættum og tryggja eins og kostur er að félagið starfi í samræmi við samkeppnislög og góða viðskiptahætti.
Upplýsingaöryggi og vernd persónuupplýsinga
Sjóvá leggur áherslu á öryggi og vernd upplýsinga, og hefur sett sér stefnur um upplýsingaöryggi og um persónuvernd í samræmi við lög og reglur. Lögð er áhersla á að tryggja upplýsingaöryggi og rétta meðferð upplýsinga, gagna og kerfa. Stuðlað er að hlítingu með öflugu eftirliti, reglulegum úttektum og prófunum, ásamt vottun á upplýsingaöryggi samkvæmt ISO27001 staðlinum. Sjóvá hefur verið með vottunina frá 2014 en hún staðfestir að stjórnkerfi upplýsingaöryggis sé í samræmi við kröfur staðalsins, sem miða að því að upplýsingar séu verndaðar á kerfisbundinn, rekjanlegan og áhættumiðaðan hátt. Hún hefur verið staðfest árlega fyrir Sjóvá, nú síðast eftir úttekt sem fór fram í maí 2025. Kröfur til félagsins hvað varðar upplýsingaöryggi og öryggi við rekstur upplýsinga- og fjarskiptatækniinnviða eru sífellt að aukast, m.a. með nýju regluverki um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar (DORA).
Stöðugt er unnið að því að meta og lámarka áhættu vegna ógna við upplýsingaöryggi, meðal annars með samstarfi við ýmsa innlenda og erlenda birgja og sérfræðinga á sviðinu. Þá er fræðsla starfsfólks mikilvægur þáttur í að viðhalda þekkingu og tryggja rétt viðbrögð við frávikum.
Stefna í fræðslumálum
Fræðslustefna Sjóvár hefur það að markmiði að starfsfólk efli og viðhaldi þekkingu sinni og hæfni. Regluleg þjálfun og fræðsla um upplýsingaöryggi er mikilvægur hluti af fræðslustarfinu. Lögð er áhersla á virka öryggisvitund og að starfsfólk sé ávallt meðvitað um ábyrgð sína þegar kemur að meðhöndlun og vernd upplýsinga sem unnið er með. Lesa má nánar um þjálfun, fræðslu og endurmenntun starfsfólks í kafla um mannauð.
Viðurkenningar
Í ágúst hlaut Sjóvá nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum 2025. Um er að ræða viðurkenningu sem veitt er árlega af Stjórnvísi, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland, til fyrirtækja þar sem starfshættir stjórna eru vel skipulagðir og framkvæmd stjórnarstarfa til fyrirmyndar. Þá var Sjóvá Framúrskarandi fyrirtæki 2025 samkvæmt úttekt Creditinfo, sem tekur árlega út rekstur fyrirtækja og metur stöðu þeirra. Sjóvá var einnig efst tryggingafélaga í Sjálfbærniásnum 2025, sem er samræmdur mælikvarði sem mælir viðhorf íslenskra neytenda til frammistöðu fyrirtækja og stofnana í sjálfbærnimálum.


Birting sjálfbærniupplýsinga
Sjóvá birtir upplýsingar um sjálfbærnimarkmið og árangur félagsins á UFS mælikvörðum, í samræmi við UFS leiðbeiningar Nasdaq. Þetta er í áttunda sinn sem mælikvarðarnir eru birtir sem hluti af árs- og sjálfbærniskýrslu félagsins. Þá eru upplýsingar um sjálfbærni einnig birtar í samræmi við VSME staðal EFRAG, sem mælt hefur verið með að þau fyrirtæki noti sem falla ekki undir CSRD reglugerð Evrópusambandsins.
Sjóvá er aðili að UN Global Compact (UNGC), samtökum Sameinuðu þjóðanna um ábyrga viðskiptahætti. Með aðild skuldbatt félagið sig til að vinna að tíu meginmarkmiðum UNGC um ábyrga viðskiptahætti á sviði mannréttinda, vinnumarkaðsmála, umhverfismála og varna gegn spillingu. Í júní 2025 skilaði Sjóvá fyrstu framvinduskýrslu sinni til UNGC þar sem upplýst var um stöðuna hjá félaginu í þessum málaflokkum og þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í til að styðja við sjálfbæra þróun í rekstrinum. Framvinduskýrsla Sjóvár er aðgengileg á vefsíðu samtakanna.
Sjóvá hefur verið aðili að Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð frá 2014 og UN Global Compact frá 2024.


Góð niðurstaða í UFS áhættumati
Reitun hefur framkvæmt UFS áhættumat á Sjóvá síðustu ár líkt og mörgum öðrum íslenskum fyrirtækjum en matið gerir grein fyrir hvernig fyrirtæki standa frammi fyrir áhættum sem snúa að umhverfis-, félags- og stjórnarháttum.
Matið fyrir árið 2025 var birt í júní og fékk Sjóvá einkunnina B1 með 80 stig af 100 mögulegum. Sjóvá fékk 72 stig af 100 og einkunnina B2 fyrir flokkinn Stjórnarhættir og 93 stig af 100 og einkunnina A2 fyrir undirflokkinn Almennir stjórnarhættir.