Þjónusta
Líkt og undanfarin ár lögðum við okkur fram um að vera í góðum samskiptum við viðskiptavini á árinu til að þekkja þarfir og væntingar þeirra og geta þannig veitt enn betri þjónustu. Við héldum því áfram að eiga frumkvæði að samskiptum, senda þjónustukannanir, rýna niðurstöður þeirra og vinna úr ábendingum og kvörtunum með markvissum hætti.

Hlutdeild Sjóvár á einstaklingsmarkaði hefur vaxið mikið á undanförnum misserum. Þó að hægst hafi á vextinum vorum við, líkt og síðustu ár, með stærstu hlutdeildina á markaðnum 2025, bæði í persónu- og skaðatryggingum. Ánægja viðskiptavina hefur enda áhrif á tryggð þeirra, en viðskiptavinir Sjóvár eru ánægðustu viðskiptavinir tryggingafélaga á íslenskum markaði samkvæmt mælingu Íslensku ánægjuvogarinnar 2025.
Lesa má nánar um áherslur og árangur tengdan ánægju viðskiptavina í umfjöllun um ánægju viðskiptavina og annarra notenda þjónustu.
einstaklingar voru með tryggingar hjá okkur í lok árs 2025.
Vildarþjónustan Stofn hefur verið starfrækt í yfir 30 ár en þar er boðið upp á ýmis fríðindi og afslætti auk endurgreiðslu fyrir tjónlausa viðskiptavini. Til að komast í Stofn þarf viðskiptavinur að vera með Fjölskylduvernd eða Snjalltryggingu og tvær aðrar tilteknar tryggingar. Í árslok 2025 voru 42.776 fjölskyldur í Stofni.
„Sjóvá hefur alltaf hugsað mjög vel um okkur fjölskylduna. Passað upp á að allar tryggingar séu í samræmi við okkar þarfir hverju sinni. Bestu þakkir fyrir frábæra þjónustu í gegnum árin.“
Á árinu fengu
Stofnendurgreiðslu frá okkur.
Samtals voru
endurgreiddar til tjónlausra viðskiptavina í Stofni á árinu.