Þjónusta

Fyrirtæki

Sjóvá leggur ríka áherslu á að veita fyrirtækjum í viðskiptum úrvals þjónustu, hvort sem um er að ræða stór eða smá fyrirtæki og sama hvers eðlis rekstur þeirra er. Við héldum sterkri stöðu okkar á fyrirtækjamarkaði á árinu þó að samkeppni hafi verið hörð þar eins og undanfarin ár.

Við lögðum okkur að vanda fram við að vera í góðum samskiptum við fyrirtækin okkar varðandi helstu verkefni þeirra og áskoranir. Hluti af því voru áhættu- og forvarnaskoðanir starfsfólks okkar í fyrirtæki en samtals var farið í 282 slíkar skoðanir á árinu. Það er mikil aukning frá fyrri árum enda var ákveðið að gefa hér sérstaklega í samhliða átaki sem Sjóvá stóð fyrir á árinu gegn vinnuslysum. Að auki var farið í mörghundruð þjónustuheimsóknir til fyrirtækja en þær eru afar mikilvægar til að viðhalda samtalinu við starfsfólk þeirra.

Lesa má nánar um átak gegn vinnuslysum og önnur forvarnarverkefni í umfjöllun um forvarnir.

8.899

fyrirtæki voru með tryggingar hjá okkur í lok árs.