Þjónusta

Tjónaþjónusta

Þegar óvæntir atburðir eiga sér stað og viðskiptavinir lenda í tjóni skiptir máli að þeir geti treyst á öfluga og skilvirka þjónustu tryggingafélagsins síns. Tjónaþjónusta Sjóvár er hönnuð með þarfir viðskiptavina að leiðarljósi og byggir hún á fagmennsku, hraða og persónulegri nálgun. Við vinnum stöðugt að því að einfalda ferla og bæta upplifun viðskiptavina, frá upphafi til enda.

Við nýtum tæknilausnir í auknum mæli til að gera samskipti og þjónustu vegna tjóna einfaldari og skilvirkari. Þegar aðstæður krefjast tafarlausra viðbragða er alltaf hægt að leita beint til tjónavaktar okkar, þar sem starfsfólk er ávallt til þjónustu reiðubúið.

39.929

tjón voru tilkynnt til okkar á árinu.

Skjót viðbrögð geta skipt sköpum

Tjónaþjónusta okkar er í boði allan sólarhringinn, alla daga ársins. Skjót viðbrögð og fagleg vinnubrögð geta skipt öllu máli þegar tjón verður og jafnvel dregið verulega úr umfangi þess. Með því að bregðast hratt við verjum við ekki eingöngu hagsmuni viðskiptavina, heldur leggjum um leið okkar af mörkum til að lágmarka sóun og umhverfisáhrif sem fylgja tjónum.

Það er reynslumikill hópur sérfræðinga sem sinnir þjónustu vegna eigna-, ökutækja- og persónutjóna. Þekking, reynsla og sérhæfing þeirra tryggir að hvert mál fái vandaða og faglega meðhöndlun, hvort sem um er að ræða minniháttar atvik eða umfangsmikil tjón. Þegar þörf krefur leitum við til sérfræðinga og valinna samstarfsaðila sem aðstoða og styðja okkur við að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.

Ég þakka fyrir góðar móttökur og jákvæðan starfsmann og umfram allt faglega þjónustu. Það er gott koma því orkan er afslöppuð og góð.
Umsögn viðskiptavinar í þjónustukönnun.