Þjónusta

Tjónaþjónusta

Það reynir á hlutverk okkar þegar viðskiptavinir lenda í tjóni og leggjum við því mikið upp úr að sinna tjónaþjónustu okkar með framúrskarandi hætti. Við vinnum stöðugt að umbótum á ferlinu sem hefst þegar viðskiptavinur tilkynnir tjón til að bæta upplifun hans af þjónustunni og auka ánægju.

Við nýtum okkur tæknina í sífellt auknum mæli til að þjónusta viðskiptavini vegna tjóna.

Sum tjón eru þó þess eðlis að nauðsynlegt er að bregðast við strax og þá er alltaf hægt að ná sambandi við tjónavakt okkar.

Yfir

40.000

tjón voru tilkynnt til okkar á árinu.

Þjónusta allan sólarhringinn

Tjónaþjónusta okkar er til staðar allan sólarhringinn enda vitum við að snögg viðbrögð og fagleg vinnubrögð geta skipt sköpum og gert það að verkum að umfang sumra tjóna verður ólíkt minna en annars hefði orðið. Það er ekki bara hagur viðskiptavinarins heldur samfélagsins alls því með því að minnka umfang tjóns er hægt að lágmarka sóun og umhverfisspor þess.

Hjá okkur starfar öflugur hópur sérfræðinga sem sinnir þjónustu vegna eignatjóna, ökutækjatjóna og persónutjóna. Þessi hópur býr yfir víðtækri menntun og fjölbreyttri reynslu og sérfræðiþekkingu sem gerir okkur kleift að veita úrvals þjónustu þegar viðskiptavinir lenda í tjónum, stórum sem smáum. Að auki er notast við aðkeypta sérfræðiaðstoð þegar þörf er á. Við leggjum mikinn metnað í að velja góða samstarfsaðila sem aðstoða okkur við að veita viðskiptavinum þá þjónustu sem þeir eiga skilið. 

Þið eruð frábær, æðisleg þjónusta, eigandi hund sem við elskum og er æði og með ykkar þjónustu er okkur gefið það að geta elskað hann mikið lengur þessi dýratrygging hefur hjálpað okkur 😍😍
Umsögn viðskiptavinar í þjónustukönnun