Umsjón
Ábyrgðarmaður
Hönnun og forritun
Tekjur af vátryggingasamningum
↑11,6%
Tjón ársins
↑15,8%
Arðsemi eigin fjár eftir skatta
Afkoma af vátryggingasamningum fyrir skatta
↑11,3%
Afkoma af fjárfestingum eftir fjármagnsliði fyrir skatta
Hagnaður ársins
↑74,5%
Eiginfjárhlutfall
Samsett hlutfall
Gjaldþolshlutfall eftir fyrirhugaða arðgreiðslu
Ný trygging fyrir ungt fólk
Aukin samvinna útibúa
Bætt þjónusta og aukin skilvirkni
viðskiptavina gaf okkur þjónustueinkunn á bilinu 8-10
í Stofni fengu endurgreiðslu vegna tjónleysis
tjóna á árinu voru tilkynnt rafrænt
sparaðir í akstur á árinu með fjarskoðun á fasteignatjónum
skipulagðar áhættuskoðanir á fyrirtækjum á árinu
Sjöunda árið í röð er Sjóvá efst tryggingafélaga í Íslensku ánægjuvoginni.
Áttavitinn er sérstök viðurkenning sem Slysavarnafélagið Landsbjörg veitir þeim sem sýnt hefur félaginu sérstakan stuðning í störfum sínum.
2023 1.1 - 31.12 | 2022* 1.1 - 31.12 | |
Tekjur af vátryggingasamningum | 31.273.382 | 28.011.113 |
Tjón tímabilsins | -23.425.571 | -20.227.727 |
Rekstrarkostnaður af vátryggingasamningum | -6.122.677 | -5.772.309 |
Afkoma af endurtryggingasamningum | -30.390 | -488.889 |
Afkoma af vátryggingasamningum | 1.694.744 | 1.522.187 |
Hreinar fjármunatekjur | 931.142 | 1.586.237 |
Gangvirðisbreytingar fjáreigna | 3.868.729 | 88.043 |
Rekstrarkostnaður af fjárfestingastarfsemi | -299.600 | -290.597 |
Afkoma fjárfestinga | 4.500.271 | 1.383.683 |
Fjármagnsliðir vátryggingasamninga | -893.865 | 142.607 |
Afkoma fjárfestinga eftir fjármagnsliði | 3.606.406 | 1.526.290 |
Afkoma af vátryggingasamningum og fjárfestingum | 5.301.149 | 3.048.477 |
Aðrar tekjur | 157.276 | 138.367 |
Annar rekstrarkostnaður | -46.001 | -48.915 |
Annar fjármagnskostnaður | -68.157 | -67.511 |
Hagnaður fyrir tekjuskatt | 5.344.267 | 3.070.418 |
Tekjuskattur | -718.719 | -420.105 |
Hagnaður og heildarhagnaður tímabilsins | 4.625.549 | 2.650.313 |
2023 1.1 - 31.12 | 2022* 1.1 - 31.12 | |
Tjónahlutfall | 74,9% | 72,2% |
Endurtryggingahlutfall | 0,1% | 1,7% |
Kostnaðarhlutfall | 19,6% | 20,6% |
Samsett hlutfall | 94,6% | 94,6% |
Arðsemi eigin fjár fyrir skatta á ársgrundvelli | 23,9% | 13,5% |
Arðsemi eigin fjár eftir skatta á ársgrundvelli | 20,7% | 11,6% |
Eiginfjárhlutfall | 33,7% | 34,6% |
Gjaldþolshlutfall eftir fyrirhugaða arðgreiðslu og tilkynnt endurkaup | 1,40 | 1,41 |
Lágmarksfjármagnshlutfall eftir fyrirhugaða arðgreiðslu og tilkynnt endurkaup | 3,40 | 3,49 |
2023 | 2022* | |
Verðbréf | 54.267.272 | 51.254.266 |
Endurtryggingaeignir | 1.815.922 | 1.037.824 |
Eignir samtals | 69.304.836 | 61.682.825 |
Skuldbinding vegna vátryggingasamninga | 36.748.810 | 32.058.522 |
Eigið fé samtals | 23.321.301 | 21.332.043 |
Í ágúst 2023 fékk Sjóvá viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum. Það eru Stjórnvísi, Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq á Íslandi sem standa að þessari viðurkenningu, sem byggir á mati sem unnið er út frá leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem Viðskiptaráð, SA og Nasdaq á Íslandi hafa gefið út.
Reitun hefur síðustu ár framkvæmt UFS áhættumat á Sjóvá, á umhverfisþáttum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum. Í matinu sem unnið var árið 2023 fékk Sjóvá heildareinkunnina B2 með 78 punkta af 100 mögulegum. Fyrir flokkinn stjórnarhætti fékk félagið 70 stig af 100 mögulegum og einkunnina B2, en fyrir undirflokkinn almenna stjórnarhætti var gefin einkunnin A2 eða 93 stig af 100. Nánar um niðurstöðu matsins hér.
Í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti birtum við árlega stjórnarháttayfirlýsingu, þar sem gerð er grein fyrir stjórnarháttum Sjóvár. Helstu atriði stjórnarháttaryfirlýsingar eru birt hér á eftir en hana má nálgast í heild sinni með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) er hlutafélag sem stofnað var 20. júní 2009. Félagið er vátryggingafélag og starfar samkvæmt lögum um hlutafélög nr. 2/1995, lögum um vátryggingastarfsemi nr. 100/2016 og lögum um vátryggingasamstæður nr. 60/2017.
Í samræmi við lög um endurskoðendur nr. 94/2019 eru vátryggingafélög skilgreind sem einingar tengdar almannahagsmunum og er sérstaklega kveðið á um hlutverk endurskoðunarnefnda í slíkum einingum í lögum um ársreikninga nr. 3/2006.
Sjóvá samstæðan starfar á vátryggingamarkaði og er alhliða vátryggingafélag með starfsemi á Íslandi á sviði skaða- og líftrygginga. Samkvæmt útgefnum ársreikningum var hlutdeild Sjóvá miðað við iðgjöld ársins hjá íslenskum vátryggingafélögum í árslok 2022 um 32% í skaðatryggingum og um 35% í líf- og heilsutryggingum. Sjóvá-Almennar líftryggingar hf. (Sjóvá líf) er dótturfélag Sjóvá og er allri daglegri starfsemi þess útvistað til móðurfélagsins.
Fæddur 28. ágúst 1955, til heimilis á Seltjarnarnesi. Björgólfur var fyrst kjörinn í stjórn Sjóvá 15. mars 2019. Björgólfur er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Fædd 4. ágúst 1966, til heimilis í Kópavogi. Hildur hefur setið í stjórn Sjóvá frá 15. mars 2019. Hildur er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Fæddur 6. janúar 1963, til heimilis í Garðabæ. Guðmundur var fyrst kjörinn í stjórn Sjóvá 12. mars 2020 og hann hefur frá 28. apríl 2021 verið stjórnarformaður dótturfélagsins Sjóvá-Almennra líftrygginga hf. Guðmundur er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Fæddur 12. janúar 1969, til heimilis í Garðabæ. Ingi Jóhann hefur setið í stjórn Sjóvá frá 28. júlí 2011. Ingi telst óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háður stórum hluthafa samkvæmt leiðbeiningum um stjórnarhætti.
Fædd 27. mars 1982, til heimilis í Reykjavík. Ingunn var fyrst kjörin í stjórn Sjóvá 12. mars 2020. Ingunn er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Fædd 5. maí 1968, til heimilis í Garðabæ. Erna sat í stjórn Sjóvár frá 20. júní 2009 lengst af sem formaður stjórnar og síðar sem varamaður frá 15. mars 2019. Erna er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Fæddur 19. október 1966, til heimilis í Garðabæ. Hann hefur verið varamaður í stjórn Sjóvá frá 30. september 2011. Garðar er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Stjórn skal samkvæmt samþykktum félagsins skipuð fimm aðalmönnum og tveimur varamönnum.
Allir stjórnarmenn hafa staðist hæfismat Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.
Stjórn Sjóvá telur að ákvæðum leiðbeininga um stjórnarhætti er varða óhæði stjórnarmanna sé fullnægt. Þau Björgólfur, Guðmundur Örn, Hildur og Ingunn eru óháð félaginu, daglegum stjórnendum þess og stórum hluthöfum. Ingi Jóhann er óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en hann telst háður stórum hluthafa samkvæmt leiðbeiningum um stjórnarhætti þar sem hann er eigandi og stjórnarmaður í félögum sem eiga beina og óbeina eignarhluti yfir 10% í Sjóvá.
Stjórn Sjóvá fundaði 18 sinnum á árinu 2023.
Stjórn Sjóvá-Almennra líftrygginga hf.
Stjórn Sjóvá-Almennra líftrygginga hf., dótturfélags Sjóvá, skipa Guðmundur Örn Gunnarsson, stjórnarformaður, Hafdís Böðvarsdóttir, viðskiptafræðingur og Heiðrún Lind Marteinsdóttir, lögmaður. Varamenn í stjórn eru Elín Þórunn Eiríksdóttir framkvæmdastjóri tjónasviðs og Grétar Dór Sigurðsson, lögmaður. Guðmundur Örn, Hafdís, Heiðrún og Grétar teljast óháð Sjóvá lífi, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum. Stjórn Sjóvá lífs átti 9 fundi á árinu 2023.
Fæddur 15. febrúar 1963, til heimilis í Reykjavík. Hermann hefur verið forstjóri Sjóvá frá október 2011 og framkvæmdastjóri dótturfélagsins, Sjóvá-Almennra líftrygginga hf. frá því í apríl 2021.
Fæddur 7. september 1981, til heimilis í Reykjavík, er framkvæmdastjóri sölu og ráðgjafar. Birgir var forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar og sérfræðingur í endurtryggingum frá árinu 2017-2022 og starfaði áður í áhættustýringu frá árinu 2011.
Fædd 15. desember 1967, til heimilis í Hafnarfirði, er framkvæmdastjóri tjónaþjónustu. Hún var áður framkvæmdastjóri sölu og ráðgjafar Sjóvá frá 2012 og síðar viðskiptaþróunar og rekstrar og þróunar.
Fædd 24. apríl 1983, til heimilis í Garðabæ, er framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni. Sigríður Vala var forstöðumaður hagdeildar Sjóvá árin 2016-2021 ásamt því að sitja í fjárfestinganefnd félagsins.
Fæddur 24. maí 1967, til heimilis á Seltjarnarnesi, er framkvæmdastjóri markaðsmála og viðskiptaþróunar. Hann var forstöðumaður stefnumótunar og viðskiptaþróunar Sjóvá frá árinu 2018-2022.
Við hjá Sjóvá leggjum okkur fram um að starfa í sátt við samfélag og umhverfi og höfum gert um langa hríð, til dæmis með öflugu forvarnastarfi sem hefur verið hluti af starfsemi félagsins frá upphafi. Við höfum sett okkur stefnu um sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð, sem rýnd er árlega, og tökum mið af henni í allri ákvarðanatöku, þvert á fyrirtækið. Með þessu viljum við stuðla að vexti til framtíðar samfélaginu öllu til hagsbóta. Einnig er unnið eftir umhverfisstefnu, sem sett er fram til að tryggja að umhverfissjónarmið séu höfð að leiðarljósi í daglegum rekstri félagsins.
Sjóvá framkvæmdi á árinu tvöfalda mikilvægisgreiningu sjálfbærniþátta, sem er hluti af þeirri vinnu sem fer fram til að uppfylla kröfur ESRS staðlanna. Greiningin felst í að afmarka hvaða sjálfbærniþættir hafa mesta þýðingu fyrir Sjóvá og hagaðila þess; að kortleggja áhrif félagsins á ólíka sjálfbærniþætti og fjárhagleg áhrif sjálfbærniþáttanna á félagið, áhættur og tækifæri.
Við framkvæmdina voru haldnar vinnustofur og tekin viðtöl við breiðan hóp hagaðila, s.s. viðskiptavini, þjónustuaðila, hluthafa, allt starfsfólk, framkvæmdastjórn og stjórn. Gerð er grein fyrir þeim sjálfbærniþáttum sem metnir voru mikilvægastir fyrir Sjóvá síðar í þessari skýrslu og hvernig er unnið að þeim hjá okkur.
Skref 1 | Greining hagaðila | Hagaðilar félagsins listaðir upp. Horft til þess hverjir hafa áhrif á starfsemi félagsins og hverjir verða fyrir áhrifum af starfsemi félagsins. |
Skref 2 | Rýni sjálfbærniþátta | Hópur sérfræðinga rýndi sjálfbærniþætti úr ESRS staðlinum og aðra sjálfbærniþætti sem tengjast viðskiptalíkani og virðiskeðju. 15 þættir valdir til að vinna áfram með. |
Skref 3 | Mat á áhrifum sjálfbærniþátta | 15 sjálfbærniþættir metnir af hagaðilum og sérfræðingum með tilliti til áhrifa sem félagið getur haft á þá og fjárhagslegra áhrifa sem þeir geta haft á félagið. Mat framkvæmt með viðtölum og vinnustofum með hagaðilum. |
Skref 4 | Mat á mikilvægi sjálfbærniþátta | Sömu hagaðilar og sérfræðingar fengnir til að meta mikilvægi hvers sjálfbærniþáttar, út frá áhrifum félagsins á sjálfbærniþátt og fjárhagslegum áhrifum sjálfbærniþáttar á félagið, á skalanum 1-10. |
Skref 5 | Niðurstöður samþykktar | Niðurstöður greiningarinnar kynntar fyrir framkvæmdastjórn og stjórnum félaganna og samþykktar. |
Samkvæmt niðurstöðum mikilvægisgreiningarinnar eru eftirfarandi sjálfbærniþættir mikilvægastir fyrir Sjóvá:
Fyrir neðan má sjá hvernig sjálfbærniþættirnir röðuðust niður samkvæmt einkunnagjöf sem var hluti af greiningunni með hagaðilum, þar sem áhrif voru metin á skalanum 1-10 (1 = mjög lítil áhrif, 10 = mjög mikil áhrif).
Með hliðsjón af þessum niðurstöðum gerum við sérstaka grein fyrir þessum mikilvægustu sjálfbærniþáttum hér á eftir, stefnu okkar, áherslum og verkefnum þeim tengdum sem unnið var að á árinu. Samkvæmt ESRS stöðlunum er gerð krafa um að tvöföld mikilvægisgreining sé gerð með reglubundnum hætti og eru áform um að gera hana árlega hjá Sjóvá.
Á árinu 2024 mun fara fram frekari gagnasöfnun um mikilvægustu sjálfbærniþætti með hliðsjón af ESRS stöðlunum og munum við gera ítarlegri grein fyrir mikilvægustu þáttunum í árs- og sjálfbærniskýrslu þess árs, enda líklegt að kröfur um upplýsingagjöf hafi þá aukist með innleiðingu fleiri þátta reglugerðarinnar um staðlana.
UFS áhættumat Reitunar á frammistöðu Sjóvár á sviði sjálfbærni var gert í þriðja sinn á árinu 2023. Sjóvá fékk einkunnina B2 og 78 stig af 100 mögulegum og er fyrir ofan meðaltal íslenska markaðarins sem er nú 72 stig af 100 mögulegum hjá þeim félögum sem Reitun hafði tekið út.
Matið gerir grein fyrir hvernig fyrirtæki standa frammi fyrir áhættum sem snúa að umhverfis- og félagsþáttum og stjórnarháttum. Fyrir umhverfisþætti fékk Sjóvá A3 eða 88 stig af 100, sem er yfir meðaltali markaðarins. Þá fékk félagið framúrskarandi einkunn fyrir félagsþætti, eða A1 með 97 stig af 100 og er þar einnig yfir meðaltalinu. Fyrir stjórnarhætti var gefin einkunnin B2 eða 70 stig af 100 sem er á pari við meðaltal félaga sem hafa verið metin.
Sjóvá setur sér markmið í samræmi við stefnu um sjálfbærni, samfélagsábyrgð og umhverfisstefnu sem snúa að umhverfisþáttum, félagsþáttum og stjórnarháttum. Hver starfseining skilgreinir sín markmið út frá eigin verkefnum og út frá mati á áhrifum aðgerða. Unnið verður að því að samþætta markmiðasetningu í sjálfbærnimálum á grundvelli niðurstöðu mikilvægisgreiningar á árinu 2024.
Áherslur okkar í sjálfbærni taka mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og vinnum við stöðugt að því að auka samþættingu þeirra við starfsemina. Við leggjum áherslu á fimm markmið sem tengjast eðli rekstrarins; 3. Heilsa og vellíðan, 5. Jafnrétti kynjanna, 8. Góð atvinna og hagvöxtur, 12. Ábyrg neysla og framleiðsla og 13. Aðgerðir í loftslagsmálum.
Við höfum einnig hafið vinnu við að undirbúa innleiðingu CSRD tilskipunar og ESRS staðla (skv. tilskipun ESB nr. 2022/2464 (CSRD) og reglugerðar nr. 2023/2772) sem Evrópusambandið hefur sett til að auka enn frekar gagnsæi í upplýsingagjöf. Við birtum því hér í fyrsta skipti upplýsingar um félagsþætti út frá ESRS stöðlum.
Frá árinu 2021 höfum við verið í samstarfi við Klappir grænar lausnir um notkun á sjálfbærnilausn þeirra til að halda utan um árangur aðgerða í UFS sjálfbærniskýrslu og við gerð sjálfbærniuppgjörs. Gögnum um umhverfisþætti í UFS skýrslu er nú að stærstum hluta safnað inn í kerfi Klappa með sjálfvirkum hætti, en kerfið annast útreikninga á losun samkvæmt Greenhouse Gas Protocol. Upplýsingar um félagsþætti og stjórnarhætti eru teknar saman af félaginu.
Bannar fyrirtækið forstjóra að sinna stjórnarformennsku
Hlutfall óháðra stjórnarmanna er 80%
Fá framkvæmdastjórar formlegan kaupauka fyrir að ná árangri á sviði sjálfbærni?
Hlutfall starfsmanna sem falla undir almenna kjarasamninga 93,1%
Ber seljendum fyrirtækisins og birgjum þess að fylgja siðareglum?
36% birgja hafa staðfest siðareglur - Miðað er við birgja með viðskipti yfir 3 milljónum króna á ári
Framfylgir fyrirtækið siðareglum og/eða stefnu gegn spillingu og mútum?
80% hlutfall starfsmanna hefur formlega staðfest að það fylgi stefnunni
Framfylgir fyrirtækið persónuverndarstefnu
Hefur fyrirtækið þitt hafist handa við að fylgja GDPR reglum?
Birtir fyrirtækið þitt sjálfbærniskýrslu?
Inniheldur sjálfbærniskýrslan kafla um félagslega þætti, stjórnarhætti og umhverfisþætti?
Inniheldur skýrslugjöf fyrirtækisins til stjórnvalda gögn um sjálfbærni?
Veitir fyrirtækið upplýsingar um sjálfbærni til viðurkenndra aðila með skipulögðum hætti?
Leggur fyrirtækið áherslu á tiltekin heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (UN SDGs)?
Setur fyrirtækið markmið og gefur skýrslu um framvindu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna?
Er upplýsingagjöf um sjálfbærni tryggð eða staðfest af þriðja aðila?
Fylgir fyrirtækið formlegri umhverfisstefnu?
Fylgir fyrirtækið sérstökum úrgangs-, vatns-, orku- og/eða endurvinnslustefnum?
Notar fyrirtækið viðurkennt orkustjórnunarkerfi?
Hefur framkvæmdastjórn yfirumsjón með og/eða stýrir loftslagstengdri áhættu?
Hefur stjórn eftirlit með og/eða stjórnar loftslagstengdri áhættu?
712.900 kr. er árlega fjárfest í loftslagstengdum innviðum, seiglu og vöruþróun
Fylgir fyrirtækið stefnu er varðar kynferðislegt áreiti og/eða jafnrétti?
Heildarfjöldi slasaðra og banaslysa er 0%, miðað við heildarvinnuafl
Hefur fyrirtækið birt og framfylgt vinnuverndarstefnu og/eða heildrænni heilsu- og öryggisstefnu?
Heildarfjarvistir frá vinnu 0,028 upp í heildarvinnutíma allra starfsmanna
Fjarvistir frá vinnu vegna langvarandi veikinda 0,007 upp í heildarvinnutíma allra starfsmanna
Fjarvistir frá vinnu vegna skammtímaveikinda 0,02 upp í heildarvinnutíma allra starfsmanna
Framfylgir fyrirtækið stefnu gegn barnaþrælkun?
Framfylgir fyrirtækið stefnu gegn nauðungarvinnu?
Ef já, nær mannréttindastefnan til birgja og framleiðenda?
Hefur fyrirtækið birt og framfylgt mannréttindastefnu?
Ef já, nær mannréttindastefnan til birgja og framleiðenda?